Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 945, 118. löggjafarþing 294. mál: alþjóðasamningar um varnir gegn mengun sjávar og Siglingamálastofnun ríkisins (skipulag mengunarvarna).
Lög nr. 57 8. mars 1995.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 14/1979.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 20/1986.
III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 32/1986.
Þingskjal 945, 118. löggjafarþing 294. mál: alþjóðasamningar um varnir gegn mengun sjávar og Siglingamálastofnun ríkisins (skipulag mengunarvarna).
Lög nr. 57 8. mars 1995.
Lög um breyting á lögum nr. 14/1979, um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta fyrir Íslands hönd þrjá alþjóðasamninga um varnir gegn mengun sjávar af völdum olíu, lögum nr. 20/1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar.
1. gr.
Í stað orðsins „Siglingamálastjóri“ í 4. gr. laganna kemur: Hollustuvernd ríkisins.2. gr.
7. tölul. 2. gr. laganna orðast svo: Að annast mál er varða lög um varnir gegn mengun sjávar og reglugerðir samkvæmt þeim að því leyti sem þau varða skip og búnað þeirra samkvæmt reglum sem umhverfisráðherra setur.3. gr.
Í stað orðanna „Siglingamálastofnunar ríkisins“ í 4. mgr. 5. gr. laganna kemur: Hollustuverndar ríkisins.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1995.Samþykkt á Alþingi 25. febrúar 1995.